HomeNeðri deildir1. deild karlaTveir lykilhlekkir framlengja á Selfossi

Tveir lykilhlekkir framlengja á Selfossi

Selfoss hefur gengið frá nýjum samningum við tvo leikmenn fyrir komandi tímabil í meistaraflokki karla.

Tristan Máni Morthens hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Tristan hefur verið lykilmaður í meistaraflokknum undanfarin ár og mun áfram gegna mikilvægu hlutverki í liðinu á næstu leiktíð.

Þá hefur Hafþór Gylfason einnig framlengt samning sinn. Hafþór er uppalinn hjá félaginu og hefur sýnt stöðugar framfarir með hverju árinu sem líður gegnum yngri flokkana, en mikil eftirvænting ríkir á Selfossi að fylgjast með áframhaldandi vexti hans í meistaraflokksliðinu.

Fréttir
- Auglýsing -