Tveir leikir fara fram í átta liða úrslitum Bónus deildarinnar í kvöld.
Tindastóll mætir í Skógarsel með byr undir vængjum eftir sigur í fyrsta leiknum. ÍR-ingar þurfa nauðsynlega á sigri að halda á heimavelli til að jafna einvígið og forðast það að lenda 2–0 undir gegn sterku liði Stólanna. Búast má við hörkuleik.
Keflavík getur tekið afgerandi forystu í einvíginu með sigri í Blue-höllinni í kvöld. Valur þarf hins vegar að svara fyrir tapið í fyrsta leiknum og sýna sínar bestu hliðar gegn spræku liði heimamanna.
Leikir dagsins
- 19:00: ÍR – Tindastóll (Skógarsel)
- 19:30: Keflavík – Valur (Blue-höllin)




