Spennan í úrslitakeppni Bónusdeildarinnar heldur áfram í kvöld með tveimur mikilvægum leikjum í átta liða úrslitum.
Á Sauðárkróki mætast Tindastóll og ÍR klukkan 19:00. Stólarnir eru í feiknaformi og hafa unnið átta leiki í röð. Þeir leiða einvígið 2-0 og geta með sigri tryggt sér sæti í undanúrslitum.
Hins vegar er allt jafnt, 1-1, hjá Val og Keflavík sem mætast í N1-höllinni klukkan 19:30. Þar er baráttan galopin.
Leikir kvöldsins
Bónus deild karla – 8 liða úrslit
Kl. 19:00: Tindastóll – ÍR (Sauðárkrókur)
Kl. 19:30: Valur – Keflavík (N1-höllin að Hlíðarenda)




