Það eru ekki bara strákarnir í U18 ára liði Íslands sem eru á fullu í Sarajevo. Tveir íslenskir dómarar eru að dæma þar og hafa staðið sig vel. Þetta eru þeir Sigmundur Már Herbertsson og Aðalsteinn Hjartarson sem er fulltrúi Sviss á mótinu.
Eins og fyrr segir hafa þeir staðið sig vel og í dag mun Sigmundur dæma undanúrslitaleik Bosníu og Hersgovínu gegn Englandi.
Þá gerðist sá sögulegi viðburður í mótinu að tveir íslenskir dómarar dæmdu saman leik á vegum FIBA en það var leikur Noregs og Georgíu.