Jón Axel Guðmundsson og Burgos lögðu Granada í ACB deildinni á Spáni í dag, 90-107.
Jón Axel var í byrjunarliði Burgos í leiknum, lék rúmar 23 mínútur og skilaði á þeim 9 stigum, 2 fráköstum og 4 stoðsendingum.
Eftir agalegan fyrri hluta tímabils virðast Jón Axel og félaga vera ná vopnum sínum á síðustu vikum. Hafa í heild unnið þrjá leiki, tvo síðustu og eru nú í 17. sæti deildarinnar, nú einum sigurleik frá öruggu sæti í deildinni.




