spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Tveggja stiga tap gegn Póllandi

Tveggja stiga tap gegn Póllandi

Íslenska karlalandsliðið mátti þola sitt annað tap í dag á jafn mörgum dögum á Trentino æfingamótinu á Ítalíu.

Eftir að hafa tapað fyrri leik mótsins nokkuð örugglega gegn heimamönnum í Ítalíu í gær beið liðið tveggja stiga ósigur í dag gegn Póllandi, 90-92.

Stigahæstir fyrir Ísland í sag voru Sigtryggur Arnar Björnsson með 21 stig og Hilmar Smári Henningsson með 19 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -