HomeFréttirTvær umferðir eftir í Svíþjóð - Brynjar vann Íslendingaslaginn

Tvær umferðir eftir í Svíþjóð – Brynjar vann Íslendingaslaginn

Heil umferð fór fram í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gær þar sem Jamtland lagði Solna í Íslendingaslag umferðarinnar. Þá máttu Sundsvall Dragons og 08 Stockholm HR þola tap í gærkvöldi.
Södertalje Kings 91-80 Sundsvall Dragons
Hlynur Bæringsson gerði 16 stig og tók 6 fráköst fyrir Sundsvall í leiknum og Jakob Örn bætti við 10 stigum og tveimur fráköstum.
 
Uppsala Basket 86-76 08 Stockholm HR
Helgi Magnússon gerði 12 stig og tók 2 fráköst fyrir 08 Stockholm.
 
Solna Vikings 83-93 Jamtland
Logi Gunnarsson skoraði 16 stig í liði Solna en Brynjar Þór Björnsson gerði 8 stig og tók 4 fráköst fyrir sigurlið Jamtland.
 
Nú þegar tvær umferðir eru eftir er Sundsvall í 3. sæti deildarinnar, Solna í 7. sæti, 08 Stockholm í 8. sæti en Brynjar og félagar í 9. sæti. Átta efstu lið deildarinnar taka þátt í úrslitakeppninni.
 
Mynd/ Brynjar Þór og Jamtland unnu góðan sigur í útjaðri Stokkhólms í gærkvöldi.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -