Barcelona reyndist Bilbao ofjarl í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag þar sem heimamenn fögnuðu öruggum tuttugu og níu stiga sigri.
Tryggvi Snær Hlinason var í stóru hlutverki hjá Bilbao og spilaði manna mest í sínu liði eða rúmar tuttugu og eina mínútu. Á þeim tíma skoraði hann sjö stig og tók tvö fráköst en hann nýtti þrjú af fimm skotum sínum innan teigs og eitt vítaskot.
Fyrir leikinn munaði aðeins tveimur sigrum á liðunum og hefði Bilbao getað jafnað Barcelona að stigum með sigri. Niðurstaðan þýðir hins vegar að Barcelona styrkir stöðu sína í fimmta sæti deildarinnar með sautján sigra en Bilbao situr í níunda sæti með fimmtán sigra eftir tuttugu og sex leiki.




