spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær valinn besti leikmaður 20. umferðar ACB deildarinnar

Tryggvi Snær valinn besti leikmaður 20. umferðar ACB deildarinnar

Leikmaður íslenska landsliðsins og Casademont Zaragoza, Tryggvi Snær Hlinason, hefu verið valinn leikmaður 20. umferðar ACB deildarinnar á Spáni.

Í umferðinni léku Zaragoza gegn Urbas Fuenlabrada, en á tæpum 28 mínútum spiluðum skilaði Tryggvi 24 stigum, 9 fráköstum og 2 stoðsendingum, þar sem hann var með 92% skotnýtingu.

Leikurinn fór fram þann 16. janúar, en vegna frestana var valið ekki gert opinbert fyrr en í gær.

Hér fyrir neðan má sjá það helsta úr leiknum:

Fréttir
- Auglýsing -