spot_img
HomeFréttirTryggvi Snær um heimavöll Íslands komandi föstudag í Ólafssal "Hef tekið einn...

Tryggvi Snær um heimavöll Íslands komandi föstudag í Ólafssal “Hef tekið einn leik hérna og hann er minnisstæður”

Komandi föstudag fyrsta júlí leikur Ísland lokaleik sinn í fyrri hluta undankeppni HM 2023 er liðið tekur á móti Hollandi í Ólafssal í Hafnarfirði.

Ísland hefur þegar tryggt sig áfram í næsta stig keppninnar, en leikurinn er þó mikilvægur fyrir liðið vegna þeirra stiga sem það mun taka með sér á næsta stig. Sem stendur er Ísland með tvo sigra og eitt tap í keppninni og myndi það auka líkurnar á miða á lokamótið stórlega ef liðið næði að leggja Holland í þessum seinni leik.

Hérna er 16 manna hópur Íslands fyrir leikinn

Allt um leikina, mótið og heimasíða keppninnar er að finna hér

Karfan leit við á æfingu hjá liðinu og ræddi við Tryggva Snæ Hlinasson um andann í landsliðinu, mikilvægi leiksins gegn Hollandi og hvernig honum lítist á að leikurinn sé í Ólafssal í Hafnarfirði. Tryggvi var að sjálfsögðu besti leikmaður vallarins í fræknum sigri gegn Ítalíu í Ólafssal í síðasta glugga íslenska liðsins.

Fréttir
- Auglýsing -