spot_img
HomeFréttirTryggvi Snær og Zaragoza lágu fyrir Estudiantes

Tryggvi Snær og Zaragoza lágu fyrir Estudiantes

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í kvöld í framlengdum leik fyrir Movistar Estudiantes í ACB deildinni á Spáni, 104-113. Eftir leikinn er Zaragoza í 11. sæti deildarinnar með 10 sigra og 16 tapaða það sem af er tímabili.

Á 8 mínútum spiluðum hafði Tryggvi frekar hægt um sig, skilaði einu stigi, tveimur fráköstum og stolnum bolta. Næsti leikur Zaragoza í deildinni er þann 3. apríl gegn Herbalife Gran Canaria.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -