HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær og Evrópumeistarar Bilbao aftur í úrslit FIBA Europe Cup

Tryggvi Snær og Evrópumeistarar Bilbao aftur í úrslit FIBA Europe Cup

Spænska liðið Bilbao fylgdi eftir góðum útisigri með því að leggja KC-Szombathely frá Ungverjalandi að velli á heimavelli sínum í kvöld. Leiknum lauk með sjö stiga sigri Bilbao, 95:88, en liðið hafði þegar lagt grunninn að sæti í úrslitum með 98:81 sigri í fyrri leiknum ytra. Einvígið vannst því með miklum yfirburðum samanlagt.

Í úrslitunum bíður kunnuglegt verkefni þar sem Bilbao mætir gríska liðinu PAOK annað árið í röð. Þessi sömu lið áttust við í úrslitum keppninnar á síðasta tímabili og þá hafði Bilbao betur eftir tvo leiki þar sem samanlögð skor urðu 156:147.

Fréttir
- Auglýsing -