spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær öflugur gegn Tenerife

Tryggvi Snær öflugur gegn Tenerife

Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao lutu í lægra haldi gegn Tenerife í ACB deildinni á Spáni í kvöld, 101-84.

Tryggvi lék tæpar 20 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 11 stigum, 5 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 vörðum skotum.

Bilbao eru eftir leikinn í 11. sæti deildarinnar með 13 sigra og 16 töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -