spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær öflugur gegn Gran Canaria

Tryggvi Snær öflugur gegn Gran Canaria

Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao lögðu Gran Canaria í ACB deildinni á Spáni í dag, 81-71.

Tryggvi Snær lék rúma 21 mínútu í leiknum og skilaði á þeim 8 stigum, 6 fráköstum, stoðsendingu og 2 vörðum skotum.

Eftir leikinn er Bilbao í 11. sæti deildarinnar með 13 sigra og 15 töp, en þeir eru 3 sigurleikjum fyrir neðan Valencia og Manresa sem eru í 7.-8. sætinu með 16 sigurleiki það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -