Bilbao er í kjörstöðu fyrir síðari leikinn í átta liða úrslitum Evrópubikars FIBA eftir átta stiga sigur á Petkim Spor í Tyrklandi í dag, 77:69. Liðin mætast aftur á Spáni þann 18. mars og ljóst er að Tryggvi Snær Hlinason og félagar standa vel að vígi fyrir þá viðureign.
Tryggvi Snær var á meðal bestu manna vallarins og skilaði öflugri tölfræði á þeim 23 mínútum sem hann spilaði. Hann var næststigahæsti maður sinna manna með 11 stig, en auk þess tók hann fimm fráköst og gaf tvær stoðsendingar í mikilvægum útisigri.





