spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi framlagshæstur er Bilbao setti met gegn Joventut Badalona

Tryggvi framlagshæstur er Bilbao setti met gegn Joventut Badalona

Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao báru sigurorð af Joventut Badalona í ACB deildinni á Spáni í dag, 92-71.

Tryggvi lék tæpar 23 mínútur í leiknum og skilaði 14 stigum, 8 fráköstum, 4 stoðsendingum, stolnum bolta og 2 vörðum skotum, en hann var framlagshæstur í liði Bilbao í leiknum.

Fjórar stoðsendingar Tryggva í leiknum voru hluti af félagsmeti sem liðið setti í leiknum með 25 heildarstoðsendingum.

Eftir leikinn er Bilbao í 11. sæti deildarinnar með 10 sigra og 15 töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -