HomeBónus deildinBónus deild kvennaTryggir Njarðvík sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld?

Tryggir Njarðvík sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld?

Í kvöld fer fram þriðji leikurinn í úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna þar sem Haukar taka á móti Njarðvík á Ásvöllum klukkan 19:30. Staðan í einvíginu er 2-0 fyrir Njarðvík, sem þýðir að liðið er aðeins einum sigri frá því að hampa Íslandsmeistaratitlinum.

Verkefnið er ærið fyrir ríkjandi meistara í Haukum sem þurfa sigur á heimavelli sínum til að halda voninni á lofti og knýja fram fjórða leik. Njarðvíkingar mæta hins vegar fullir sjálfstrausts á Ásvelli og ætla sér eflaust að ljúka einvíginu strax í kvöld og fagna titlinum á útivelli.

Leikur kvöldsins

Bónus deild kvenna – Úrslit

Haukar Njarðvík – kl. 19:30

Fréttir
- Auglýsing -