Ísland tapaði mikilvægum leik gegn Ítalíu í undankeppni HM 2027 þrátt fyrir öfluga frammistöðu frá Martin Hermannssyni sem skoraði 22 stig. Góð byrjun íslenska liðsins dugði skammt því Ítalir keyrðu yfir strákana okkar í miðbiki leiksins með sterkum sóknarleik og nýttu mistök íslensku varnarinnar grimmdarlega.
Með tapinu rann tækifærið til að tryggja sætið áfram úr greipum liðsins á heimavelli. Nú bíður strákanna gríðarleg pressa og hreinn úrslitaleikur gegn Bretlandi í Manchester á mánudaginn þar sem sigur er eina leiðin til að halda HM-draumnum á lífi.
Karfan spjallaði við Þóri Guðmund Þorbjarnarson eftir leik í Laugardalshöllinni.





