HomeFréttirTrikala sigrði án Harðar

Trikala sigrði án Harðar

Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Trikala eru komnir áfram í undanúrslit annarrar umferðar grísku bikarkeppninnar og spila því upp á sæti í þriðju umferð. Þar bíða risar á borð við Olympiacos og Panathinaikos sem mætast einmitt í þriðju umferð.

Hörður lék ekki með í leiknum í gær gegn Iraklis, sem Trikala sigraði 66-78, en hann á við lítilsháttar meiðsli að stríða og ákváðu forsvarsmenn Trikala að hvíla hann í þessum leik. Hörður verður samt tilbúinn í slaginn á morgun þegar liðið mætir Faros Keratsiniou. Í hinum undanúrslita leiknum mætast Promitheas og Nea Kifisia

Á miðvikudaginn eftir viku, 7.10., dettum við svo í 8 liða úrslit. Þar mætast eftirtalin lið:

Aris – AEK
Olympiacos – Panathinaikos
PAOK – Rethymno Cretan Kings
Sigurvegarar úr undanúrslitum annarrar umferðar

Fréttir
- Auglýsing -