spot_img
HomeFréttirTraust breidd Garðbæinga náði í tvö stig í Njarðvík

Traust breidd Garðbæinga náði í tvö stig í Njarðvík

 

Stjarnan sótti tvö góð stig í Ljónagryfjuna í kvöld er liðið lagði Njarðvík 83-94 í Domino´s-deild karla. Njarðvíkingar gerðu nokkrar heiðarlegar tilraunir til að komast nærri en fjölbreytt framlag gestanna kom í veg fyrir að Njarðvíkingar hefðu erindi sem erfiði. Sex liðsmenn Stjörnunnar gerðu 13 stig eða meira í leiknum en hjá Njarðvík var Stefan Bonneau atkvæðamestur með 28 stig. 

 

 

Fyrri hálfleikur

Gestirnir úr Garðabæ mættu klárir í slaginn, fengu fullt af fínum skotum í fyrri hálfleik og nýttu þau vel, leiddu 19-29 eftir fyrsta leikhluta. Stefan Bonneau kom svo af tréverkinu og kveikti í sínum mönnum, m.a. með flautuþrist í fyrsta leikhluta. Njarðvíkingar voru beittari í öðrum leikhluta, Logi Gunnarsson sem skoraði ekkert í þeim fyrsta setti 14 stig í öðrum leikhluta og Njarðvík minnkaði muninn í 45-47 og þannig voru leikar í hálfleik.

 

Hálfleikstölur

Njarðvík 45 Stefan Bonneau með 16 stig, Logi Gunnarsson með 14 stig og Jón Arnór Sverrisson með 7 stoðsendingar. Stjarnan 47 Devon Austin 12 stig og 7 fráköst og Tómas Heiðar Tómasson 9 stig. Hlynur Bæringsson var byrjaður að hlaða í þrennu í fyrri hálfleik með 6 stig, 8 fráköst og 4 stoðsendingar.

 

Síðari hálfleikur

Í upphafi síðari hálfleiks slitu gestirnir sig aftur frá Njarðvík með 2-14 byrjun og tempóið var allt Stjörnumegin til að byrja með. Njarðvíkingar tóku samt annað áhlaup og minnkuðu muninn í 70-74 þar sem Bonneau bauð upp á annan flautuþrist og ljóst að lokaspretturinn gæti orðið æsilegur. Oftar en ekki fengu Garðbæingar þægileg skot þegar Njarðvíkurvörnin var að falla of langt frá. Björn Kristjánsson minnkaði muninn fyrir Njarðvík í 79-85 en lengra komust Njarðvíkingar ekki því Stjarnan tók völdin og kláraði leikinn af harðfylgi. Lokatölur 83-94.

 

Staðreynd

Hinn 40 ára gamli Páll Kristinsson gerði 4 stig í fyrri hálfleik í Njarðvíkurliðinu. Báðar körfurnar komu eftir stoðsendingu frá Jóni Arnóri Sverrissyni, syni Sverris Þórs Sverrissonar núverandi þjálfara Keflavíkurkvenna og fyrrum liðsfélaga Páls Kristinssonar í Njarðvíkurliðinu.

 

Dýptin

Sex leikmenn hjá Stjörnunni gerðu 13 stig eða meira í leiknum, inn-út leikur þeirra var Njarðvíkingum skeinuhættur, Stjörnumenn hittu vel og losuðu þá oft vel um teiginn eða voru óhræddir við að skjóta þegar Njarðvíkingar féllu frá þeim. Allt í allt flottur leikur þar sem Stjarnan var verðskuldaður sigurvegari.

 

Tölfræði leiksins

 

Gangur leiksins 2-15, 7-21, 19-29 29-37, 42-43, 45-47 52-63, 70-74 79-85, 83-94

 

Umfjöllun / Jón Björn Ólafsson

Fréttir
- Auglýsing -