spot_img
HomeFréttirToppbarátta 1. deildarinnar að ná hámarki

Toppbarátta 1. deildarinnar að ná hámarki

Þrátt fyrir gríðarlegt magn af snjó þá er fátt sem stoppar körfuboltann þessi dægrin. Þrír leikir fara fram í 1. deild karla í dag en einungis nokkrar umferðir eru eftir af deildinni. 

 

Höttur sem er enn í efsta sæti deildarinnar fá Vestra í heimsókn en ísfirðingar eru í gríðarlegri baráttu um að komast í úrslitakeppnina. Svipað er uppá teningnum á Hlíðarenda þar sem Valsmenn geta hoppað uppí annað sæti með sigri á Hamri sem er einnig í baráttu um að komast í úrslitakeppnina.

 

Tvö neðstu lið deildarinnar mætast svo er Ármann tekur á móti ÍA en Ármann er enn á sigurs í deildinni en ÍA á enn möguleika á að klífa örlítið ofar í deildinni með góðum endasprett. 

 

Staðan í 1. deild karla fyrir leiki dagsins

1. deild karla

 

Ármann – ÍA kl 16:00

Höttur – Vestri kl 17:00

Valur – Hamar kl 19:30

Fréttir
- Auglýsing -