Tómas Tómasson veitingamaður með meiru og í raun uppfinningamaður hamborgarans á Íslandi lét sig ekki vanta þegar svangir íslenskir stuðningsmenn íslands mættu til upphitunarteitis á barnum Urban Spree nú kl 11 í morgun hér í Berlín. Tomma leiddist ekki verkið og undirritaður kvittar fyrir það að kallinn hefur ennþá þetta undra "touch" á að grilla borgara. Stutt viðtal við Tomma hér að neðan.



