HomeFréttirTómas snýr heim á ný

Tómas snýr heim á ný

Bakvörðurinn öflugi Tómas Heiðar Tómasson mun leika með Fjölni í Domino´s deildinni á næstu leiktíð eftir eins árs fjarveru við nám í Bandaríkjunum. Tómas staðfesti þetta við Karfan.is í dag.
 
Tómas var liðsmaður Newberry háskólans í Bandaríkjunum þar sem hann og Ægir Þór Steinarsson léku saman á síðasta tímabili. Tómas ákvað að halda ekki áfram námi við skólann og vera með Fjölni í vetur sem er gríðarlegur hvalreki fyrir gula í Dalhúsum.
 
Fréttir
- Auglýsing -