spot_img
HomeFréttirTólf manna hópurinn klár

Tólf manna hópurinn klár

Ívar Ásgrímsson, þjálfari, og Bjarni Magnússon, aðstoðarþjálfari, hafa valið þá 12 leikmenn sem halda á morgun til Ungverjalands og leika í fyrsta leik kvennalandsliðsins í undankeppni EuroBasket 2017.

15 manna æfingahópur var boðaður og urðu tveir leikmenn að draga sig úr hópnum vegna meiðsla og í gær var síðan valið 12 manna lið fyrir fyrsta leikinn sem fram fer á laugardaginn. Hópurinn allur heldur svo áfram æfingum fyrir seinni leikinn á miðvikudaginn eftir viku, 25. nóvember, þegar Slóvakía sækir okkur heim í Laugardalshöllinna.

Landslið Íslands gegn Ungverjum

Auður Íris Ólafsdóttir – Haukar · Bakvörður f. 1992 · 174 cm · 6 landsleikir

Berglind Gunnarsdóttir – Snæfell · Bakvörður f. 1992 · 177 cm · Nýliði

Bergþóra Holton Tómasdóttir – Valur · Bakvörður · f. 1994 · 180 cm · Nýliði

Bryndís Guðmundsdóttir – Snæfell · Framherji · f. 1988 · 178 cm · 35 landsleikir

Guðbjörg Sverrisdóttir – Valur · Bakvörður · f. 1992 · 180 cm · 7 landsleikir

Gunnhildur Gunnarsdóttir – Snæfell · Bakvörður · f. 1990 · 176 cm · 19 landsleikir

Helena Sverrisdóttir – Haukar · Bakvörður · f. 1988 · 184 cm · 57 landsleikir

Jóhanna Björk Sveinsdóttir – Haukar · Framherji · f. 1989 · 178 cm · 5 landsleikir

Pálína Gunnlaugsdóttir – Haukar · Bakvörður · f. 1987 · 167 cm · 31 landsleikir 

Ragna Margrét Brynjarsdóttir – Stjarnan · Miðherji · f. 1990 · 188 cm · 29 landsleikir

Sandra Lind Þrastardóttir – Keflavík · Miðherji · f. 1996 · 182 cm · 3 landsleikir

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir – Grindavík · Framherji f. 1988 · 181 cm · 36 landsleikir

Aðrir leikmenn hópsins: (sem fara ekki til Ungverjalands)

Marín Laufey Davíðsdóttir – Keflavík

Björg Einarsdóttir – Grindavík (meidd)

Petrúnella Skúladóttir – Grindavík (meidd)

Mynd/ Bergþóra Holton Tómasdóttir  er annar tveggja nýliða sem fara til Ungverjalands en hinn nýliðinn er Berglind Gunnardóttir leikmaður Snæfells. 

Fréttir
- Auglýsing -