spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2021Tólf manna hópurinn klár fyrir kvöldið - Lovísa spilar sinn fyrsta leik

Tólf manna hópurinn klár fyrir kvöldið – Lovísa spilar sinn fyrsta leik

Í kvöld er komið að fyrsta leik landsliðs kvenna í undankeppni EM, EuroBasket Women 2021, en í kvöld mætir liðið Búlgaríu í Laugardalshöllinni kl. 20:00. Seinni leikurinn í þessum landsliðsglugga verður svo á sunnudaginn í Grikklandi.

Domino’s, aðalstyrktaraðili KKÍ, ætlar að bjóða landsmönnum frítt á leikinn í kvöld og einnig upp á flatbökur milil kl. 19:00 og 19:30 í Höllinni.
Benedikt Guðmundsson hefur valið 12 manna lið sitt fyrir leikinn í kvöld gegn Búlgaríu og er liðið skipað eftirfarandi leikmönnum sem sjá má hér að neðan:


Nafn · Leikstaða · Hæð · Félag (landsleikir)
Dagbjört Dögg Karlsdóttir  B 169 Valur (2)
Guðbjörg Sverrisdóttir   B 180 Valur (18)
Gunnhildur Gunnarsdóttir   B 176 Snæfell (34)
Hallveig Jónsdóttir   B 180 Valur (19)
Helena Sverrisdóttir   F 184 Valur (75)
Hildur Björg Kjartansdóttir M  185 KR (30)
Lovísa Björt Henningsdóttir M  185 Haukar (Nýliði)
Sara Rún Hinriksdóttir   F 180 Leicester Raiders, England (17)
Sigrún Björg Ólafsdóttir   B 174 Haukar (5)
Sóllilja Bjarnadóttir   B 175 KR (5)
Sylvía Rún Hálfdánardóttir  F 181 Valur (2)
Þóra Kristín Jónsdóttir   B 173 Haukar (15)

Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
Aðstoðarþjálfari: Halldór Karl Þórsson
Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir
Styrkarþjálfari: Bjarki Rúnar Sigurðsson

Í hópnum í kvöld er einn nýliði, Lovísa Björt Henningsdóttir frá Haukum, sem leikur sinn fyrsta landsleik að auki í keppni á vegum FIBA. Í æfingahópnum síðustu daga hafa einnig verið þær Bríet Sif Hinriksdóttir, Grindavík, Emelía Ósk Gunnarsdóttir, Keflavík, Eva Margrét Kristjánsdóttir, Haukum og Salbjörg Ragna Sævarsdóttir, Keflavík.

Ein breyting verður gerð milli leikjanna tveggja en þá mun Emelía Ósk Gunnarsdóttir koma inn fyrir Sóllilju Bjarnadóttur og leika seinni leikinn ytra gegn Grikkjum. Landsliðið ferðast út á morgun föstudag og leikur í Chalkida á Grikklandi á sunnudaginn kemur kl. 15:00 að íslenskum tíma. Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu á RÚV.

Fréttir
- Auglýsing -