HomeFréttirTökum góðar æfingar til að vera beittir á miðvikudag

Tökum góðar æfingar til að vera beittir á miðvikudag

 
Næsta miðvikudag munu Árni Ragnarsson og félagar í Alabama Huntsville Chargers mæta Minnesota St. Mankato skólanum í 8-liða úrlslitum 2. deildar bandaríska háskólaboltans. Chargers eru í fyrsta sinn í sögu skólans í 8-liða úrslitum en Árni sagði í samtali við Karfan.is að væntingar liðsins væru mun meiri en þær að vera bara sáttir með núverandi hlutskipti sitt. 
,,Við fljúgum á mánudagsmorgun til Massachusetts þar sem 8-liða úrslitin fara fram og spilum fyrsta leik næsta miðvikudag,“ sagði Árni en Chargers hafa í mestallan vetur verið taldir á meðal sterkustu liða í 2. deildinni.
 
,,Við erum búnir að vera taldir (rankaðir) eitt af fimm sterkustu liðum landsins mestallan veturinn þannig markmið og eftirvæntingar liðsins eru mun meiri heldur en það að vera bara sáttir með að vera komnir í 8-liða úrslit,“ sagði Árni og stemmningin í kringum velgengni liðsins hefur áhrif… á alla aðra nema leikmenn liðsins!
 
,,Það er rosaleg stemming hérna í skólanum og í rauninni bara í allri borginni útaf góðu gengi liðsins. Hinsvegar eru strákarnir í liðinu frekar rólegir yfir þessu en það er eitthvað sem mér finnst einkenna þennan hóp, það var sama hvort við vorum að fara að spila við Alabama, Vanderbilt eða Regional-Championship úrslitaleikinn (16-liða úrslit) þá virkuðu menn alltaf jafn afslappaðir fyrir þessu öllu. Allir sallarólegir inní búningsklefa rétt fyrir leik,“ sagði Árni en hann og Chargers mæta Minnesota St. Mankato skólanum í 8-liða úrslitum á miðvikudag.
 
,,Liðið sem við spilum við fyrst er mjög sterkt, eins og öll liðin sem eru komin svona langt.
Aðaláherslan er auðvitað að eiga núna virkilega góðar æfingar svo við verðum pottþétt beittir á miðvikudaginn.“
 
Önnur lið sem mætast í 8-liða úrslitum 2. deildar:
 
Bellmarine-Midwestern
Anderson-West Liberty
BYU Hawaai-Bloomfield
Huntsville Chargers-Minnesota St. Mankato
 
Fréttir
- Auglýsing -