spot_img
HomeFréttirTM-Höllin og Iða nýir áfangastaðir Lengjubikarsúrslitanna

TM-Höllin og Iða nýir áfangastaðir Lengjubikarsúrslitanna

Búið er að breyta leikstað undanúrslita og úrslita Lengjubikarsins 2015. Undanúrslit kvenna fara fram í TM-höllinni í Keflavík og undanúrslit karla og úrslitaleikirnir verða í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi. Þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ. 

Þegar ljóst var að Tindastóll ætti ekki lið í úrslitunum né annað lið af svæðinu töldu forráðamenn Tindastóls og KKÍ það best fyrir körfuknattleikinn í landinu að úrslitin fari fram á suðvesturhorni landsins þar sem að öll liðin koma þaðan.

KKÍ og félögin sem taka þátt í úrslitum Lengjubikarins þakka Tindastól fyrir þá vinnu sem þeir höfðu farið í vegna úrslitanna sem og þann skilning að best sé fyrir úrslit Lengjubikarsins að þau fari fram á suðvesturhorninu að þessu sinni.

Dagskrá:

Fimmtudagur 1. október TM-höllin Keflavík
Kl. 18.15 Keflavík-Valur
Kl. 20.30 Haukar-Grindavík

Föstudagur 2. október Iða Selfossi 
Kl. 18.15 FSu-Stjarnan
Kl. 20.30 Þór Þ.-Haukar

Laugardagur 3. október Iða Selfossi
Kl. 14.00 Úrslitaleikur kvenna
Kl. 16.30 Úrslitaleikur karla

Mynd/ Hermann Snorri – Ari Gylfason og félagar í FSu fá Lengjubikarúrslitin á sinn heimavöll þetta árið. 

Fréttir
- Auglýsing -