Snæfell sigraði Hauka 60-75 í 25. umferð Dominos deildar kvenna fyrr í kvöld. Eftir leikinn er Snæfell því enn eitt á toppi deildarinnar, 2 stigum á undan Keflavík á meðan að Haukar eru í 7. sæti deildarinnar, 4 stigum á undan Grindavík í neðsta sætinu.
Fyrir leik var ljóst að á brattann yrði að sækja fyrir heimastúlkur í Haukum þar sem að ekki bara voru þær að spila við efsta lið deildarinnar, heldur vantaði í hóp þeirra erlenda leikmanninn Nashika Williams, en hún var frá vegna snúins ökkla.
Fyrri hálfleikur leiksins var þó að einhverju leyti jafn. Eftir fyrsta leikhluta leiddu gestirnir þó með 16 stigum gegn 10, en þegar að liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var sá munur kominn í 9 stig, 22-31.
Í upphafi seinni hálfleiksins gerði Snæfell svo útaf við leikinn. Sigruðu þriðja leikhlutann 21-11 og fóru því með 19 stiga forystu inn í lokaleikhlutann, 33-52. Eftirleikurinn var því frekar auðveldur fyrir þær, en þó að Haukar hafi sigrað lokaleikhlutann 27-23, voru það gestirnir sem fóru með sigur af hólmi, 75-60.
Atkvæðamest fyrir heimastúlkur í leiknum var Þóra Kristín Jónsdóttir, en hún skoraði 19 stig, tók 7 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og stal 5 boltum á þeim 36 mínútum sem hún spilaði. Fyrir gestina úr Stykkishólmi var það Aaryn Ellenberg-Wiley sem dróg vagninn, en hún skoraði 26 stig, tók 3 fráköst og gaf 6 stoðsendingar á þeim 29 mínútum sem hún spilaði.




