Í næstu viku fer fram evrópuleikur KR og Belfius Mons frá Belgíu í FIBA Europe Cup. Íslensk lið hafa leikið ansi marga evrópuleiki í gegnum tíðina en langt er síðan sá síðasti fór fram.
Síðasta lið sem lék í evrópukeppnninni var einnig KR sem lék gegn tyrkneska liðinu Banvit BC. KR tapaði báðum leikjum gegn Banvit þeim fyrri 79-96 í DHL-höllinni en útileikurinn fór 95-83 fyrir tyrkjunum.
Dabbfilm gerði leiknum góð skil með myndbandinu sem má sjá hér að neðan. Leikurinn gegn Belfius-Mons fer fram næsta þriðjudagskvöld kl 19:00 og algjör skyldumæting fyrir körfuboltaáhugamenn.
Hér að neðan má rifja upp síðasta evrópuleik sem fram fór á Íslandi.




