Sameinað lið Tindastóls og Skallagríms lét nýverið að sér kveða á Scania Cup, þar sem bestu lið Norðurlandanna mætast, og lauk keppni í sjöunda sæti af fjórtán þátttökuliðum í U14 flokki. Liðið, sem hafnaði í öðru sæti á Íslandsmótinu á síðustu leiktíð, mætti til leiks með öflugan hóp en varð fyrir blóðtöku þar sem þær María Hrönn Helgadóttir og Embla Björg Gísladóttir gátu ekki beitt sér vegna meiðsla. Aðrar stúlkur í liðinu nýttu tækifærið og stigu upp á vellinum, vel studdar af dyggum hópi foreldra sem fylgdu liðinu út.
Leikmenn liðsins sýndu mikinn karakter og þrautseigju, ekki síst þar sem þjálfarar þeirra gátu ekki verið með í för vegna anna í úrslitakeppninni heima á Íslandi. Skammt var á milli stríða í mótinu en liðið tapaði naumlega með sex stigum í spennuþrungnum leik sem hefði getað fleytt þeim í baráttu um efstu fjögur sætin. Stígandinn í leik liðsins var sérstaklega áberandi þegar leið á mótið; í leik um sæti töpuðu þær með aðeins fjórum stigum gegn liði sem hafði unnið þær með 32 stiga mun í upphafi riðlakeppninnar.

Einstaklings frammistaða leikmanna vakti einnig athygli en tveir leikmenn liðsins enduðu á topp tíu yfir stigahæstu leikmenn mótsins í sínum aldursflokki. Íris Ösp Elefsen hafnaði í sjöunda sæti með 91 stig og Rakel María Pálmadóttir varð stigahæsti leikmaður mótsins með samtals 139 stig. Körfur Rakelar voru af öllum toga, þar á meðal langskot sem mörg hver voru nær miðlínu en þriggjastigalínunni.
Að sögn leikmanna var upplifunin afar dýrmæt þar sem þær fengu að kynnast ólíkum leikstílum og annarri stemningu en þær eiga að venjast heima á Íslandi, bæði á vellinum og í stúkunni. Stúlkurnar snúa heim reynslunni ríkari og með mikið sjálfstraust fyrir komandi verkefni. Fyrir þá sem vilja kynna sér ferðalagið nánar og sjá myndir frá mótinu er hægt að skoða Instagram- og TikTok-síður liðsins sem voru virkar á meðan keppni stóð.
Ert þú með fréttir af Scania Cup? Sendu þær með mynd á [email protected].




