Stólarnir byrjuðu með Curtis, Miller, Helga Rafn, Rikka og nýja manninn Igor Tratnik í sínum fyrsta heimaleik. Hjá KR stigu fyrstir á parket þeir; Sencanski, Ferguson, Brown, Finnur Atli og Martin.
Frá fyrstu mínútu var ljóst að heimamenn voru mættir til að veita KR verðuga keppni og ætluðu ekki að láta tvo síðustu deildarleiki endurtaka sig. Í stöðunni 11 – 10 settu Stólarnir tvo þrista í röð, fyrst Þröstur Leó og síðan Miller. Í kjölfarið var dæmd óíþróttamannsleg villa á KR og Hreinsi setti niður annað víti og Igor bætti við tveimur stigum og staðan orðin 20 – 10. KR náði að laga stöðuna áður en fyrsti leikhluti var úti og staðan að honum loknum var 23 – 17.
Annar leikhluti þróaðist svipað og sá fyrsti. Fyrstu mínútnar skiptust liðin á körfum, en upp úr miðjum leikhlutanum sigur Stólarnir betur fram úr og náðu 12 stiga forskoti 39 – 27. Þá spýttu KR-ingar aftur í lófana og minnkuðu muninn jafnt og þétt fram að hálfleik. Munaði aðeins þremur stigum í hléinu, staðan 45 – 42.
Áfram hélt baráttan í síðari hálfleik, Tindastóll yfirleitt nokkrum stigum yfir, en KR hleypti þeim aldrei langt á undan sér. Þegar líða tók á leikhlutann fór KR að þjarma betur og betur að heimamönnum og náðu að jafna leikinn í 67 – 67 þegar ein og hálf mínúta var eftir af þriðja leikhluta. Heimamenn létu ekki slá sig út af laginu og skoruðu úr fjórum vítum í röð og leiddu því enn með fjórum stigum þegar loka leikhlutinn var eftir.
KR kom ákveðið til leiks í síðasta leikhlutanum og eftir tvær mínútur voru þeir komnir yfir í annað sinn í leiknum, 73 – 74. Heimamenn voru þó ekki á því að gefa forystuna eftir og breyttu í svæðisvörn og náðu að stoppa í götin og koma sér aftur yfir í leiknum. Þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir var staðan 85 – 80. Þá fór báðum liðum að verða mislagðar hendur í sókninni. KR minnkaði muninn að vísu í 85 – 83 og Tindastóll svaraði með tveggja stiga körfu frá Curtis Allen, en þetta voru einu stigin í tæpar þrjár mínútur. Greinilegt að spennan var farin að segja til sín. Næstu þrjú stig voru KR úr vítum og staðan 87 – 86. Þrjátíu sekúndur eftir og Hrafn tók sitt síðasta leikhlé til að skipuleggja síðustu andartökin. Planið var síðan að brjóta á heimamönnum og senda þá á línuna. Fyrstur þangað var Maurice Miller sem nýtti annað víti sitt og staðan 88 – 86 þegar um 15 sekúndur voru eftir.
KR fór í sókn, en dæmd var sóknarvilla á Ferguson og Stólarnir fengu boltann þegar nokkrar sekúndur voru eftir. Gestirnir brutu strax á Miller og hann fór á vítalínuna og gat tryggt sigurinn með því að hitta úr báðum. Hann hitti hinsvegar bara úr fyrra og KR náði frákastinu og átti Sencanski síðasta skot leiksins af löngu færi, en niður vildi boltinn ekki og heimamenn í Tindastóli fögnuðu vel og lengi að leik loknum, enda komnir í bikarúrslitaleikinn í fyrsta sinn.
Bestur Tindastólsmanna var Igor Tratnik með 19 stig og frábæra nýtingu í sínum skotum. Þá var Curtis Allen sterkur með 18 stig og 7 fráköst. Annars skiluðu allir sínu fyrir heimamenn.
Hjá KR voru Joshua Brown og Robert Ferguson lang atkvæðamestir, Brown með 32 stig og Ferguson 30. Hittni KR var ekki góð i kvöld en þeir héldu sér á floti með fráköstum og tóku alls 48 fráköst á móti 34 heimamanna.
Stigaskor Tindastóls: Tratnik 19, Allen 18, Þröstur 11, Svavar 9, Miller 9, Rikki 8, Hreinn 6, Helgi Freyr 5 og Helgi Rafn 2.
KR: Brown 32. Ferguson 30, Hreggviður 11, Sencanski 7, Emil, Finnur og Martin 2 stig hver.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Eggert Þór Aðalsteinsson og Davíð Kr. Hreiðarsson.
Myndasafn frá leiknum eftir Hjalta Árnason
Þetta hafði kátur Bárður Eyþórsson að segja eftir leik:
Til hamingju með sigurinn og vera komnir í Höllina:
“Já og við báðir. Við förum þangað saman.”
Hvernig fannst þér leikurinn?
“Mér fannst leikurinn í heildina bara nokkuð vel spilaður og ég var mjög ánægður með strákana, þeir lögðu sig alveg gríðarlega fram og varnarleikurinn var nokkuð góður. Þegar við þurftum að stoppa þá stoppuðum við og svona kannski burtséð frá síðustu tveimur leikjum þá voru menn á tánum og voru tilbúnir að spila og lögðu sig alla fram og það gekk bara eftir í kvöld. Það var margt sem gekk upp, við vorum að fá fín skot í leiknum og vorum bara að spila sem lið.”
Nú töpuðu illa tveimur síðustu deildarleikjum, voru menn að einblína á þennan leik í kvöld?
“Ég vona að við getum falið okkur á bak við það, en það má náttúrulega aldrei vera þannig, en einhvern veginn hef ég trú á því að menn hafi verið að því. En við erum allavega komnir til baka og höldum bara áfram að gera góða hluti.”
Þannig að þú ert bjartur fyrir framhaldinu?
“Já, ég er mjög sáttur við að vinna svona mikilvægan leik og vera kominn á þann stað sem allir vilja vera, úrslitaleik í Höllinni.”
Er þetta í fyrsta sinn sem þú ferð þangað?
“Nei, þetta er held ég í þriðja eða fjórða skiptið og alltaf tapað.”
Þannig að það er komið að sigri?
“Já, ég hef trú á því.”
Hrafn Kristjánsson þjálfari KR var ekki eins sáttur í leiksloks:
Jæja, þetta var naumt tap og sárt, hvernig fannst þér leikurinn?
“Mér fannst við gera þetta erfitt frá fyrstu sekúndu og fannst liðið vera á hælunum einhverja hluta vegna og ég get ekki skilið hvernig liðið kemur ekki á tánum inn í jafn mikilvægan leik og þennan. Það var mikið í húfi fyrir klúbbinn, liðið og bara fyrir alla sem að þessu koma og vinna gríðarlega mikið og óeigingjarnt starf fyrir þetta félag og við þurfum bara allir að spá í fyrir hverja við erum í þessu, því þetta var algjörlega óásættanlegt í kvöld.”
Nú voru tveir leikmenn með rúm sextíu stig, voru þá aðrir ekki að stíga nógu mikið upp í leiknum?
“Nei, þetta snýst ekki um það. Fólk missir sig oft í einhverjum stigatölum. Ef einhver er heitur þá verður maður að leita til hans aftur og aftur. Það er engin ástæða til að taka þriggja stig skot á kantinum þegar verið er að skora undir körfunni aftur og aftur. Við leyfðum liði að skora 89 stig á 40 mínútum í gríðarlega mikilvægum leik og við töpuðum leiknum á því.”
Texti: JS
Myndir: Hjalti Árnason



