spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaTindastóll lagði Njarðvík í framlengdum leik

Tindastóll lagði Njarðvík í framlengdum leik

Tindastóll tók á móti Njarðvík í Bónus-deild kvenna í körfuknattleik í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld.

Leikurinn fór jafnt af stað en heimakonur sýndu frá byrjun að þær ætluðu ekki að láta ógnarsterkt Njarðvíkurlið sigla yfir sig. Marta Hermida fór hamförum í vörn og sókn frá byrjun og var komin með 13 stig að loknum fyrsta leikhluta sem Stólastúlkur unnu 28-19 eftir góðan þrist frá Klöru úr horninu. Leikurinn jafnaðist í öðrum leikhluta en Stólar leiddu með 7 stigum þegar tvær mínútur voru til hálfleiks. Danielle og Paulina sáu þó til þess að gestirnir komust yfir fyrir hlé, staðan 40-43 að loknum fyrri hálfleik.

Seinni hálfleikur fór ekki vel af stað fyrir heimastúlkur en leikstjórnandi Stóla þurfti að hætta leik vegna meiðsla. Alejandra hafði þá skilað 8 stigum, 6 fráköstum og 3 stoðsendingum og munar um minna. Stólastúlkur gáfust þó alls ekki upp heldur héldu vel í gestina frá Njarðvík, staðan 60-62 eftir þrjá leikhluta. Maddie var að halda Pauline ágætlega frá körfunni en Danielle og Brittany Dinkins voru oft að fara illa með Tindastólsvörnina. Leikurinn var í járnum fram á lokasekúndurnar. Marta kom Stólum í 84-81 þegar 30 sekúndur voru eftir en Danielle jafnaði með allt of fríum þrist og Stólar náðu ekki að nýta lokasókn sína. Framlenging.

Tölfræði leiksins

Heimastúlkur sýndu svo mikinn karakter í vörn og sókn í framlengingunni sem fór jafnt af stað. Þristur frá Klöru kom Stólum í 90-86 þegar 3 mínútur lifðu leiks og heimastúlkur litu ekki um öxl eftir það og sigldu heim sterkum sigri. 

Marta Hermida átti enn einn stórleikinn fyrir Tindastól, skoraði 39 stig, reif niður 6 fráköst og gaf 12 stoðsendingar, með heil 46 framlagsstig. Maddie skoraði 22 stig og tók 13 fráköst. Hjá gestunum voru þær Brittany Dinkins (33 stig, 11 fráköst og 9 stoðsendingar) og Danielle Rodriguez (29 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar) allt í öllu.

Viðtöl

Einar Árni þjálfari Njarðvíkur
Marta Hermida leikmaður Tindastóls
Israel Martin Þjálfari Tindastóls

Umfjöllun // Hjalti Árna

Fréttir
- Auglýsing -