Valsmenn eru á siglingu og með mikið sjálfstraust og ég trúi því einfaldlega að þeirra tími sé kominn. Sóknarlega eru þeir sterkir og hafa fleiri möguleika og hungrið þeirra er eflaust mikið eftir áföll síðustu ára. Valur á að vera í efstu deild að mínu mati og þeir klára Þórsara 2-0.
Wooden og Perre verða erfiðir og Þórsarar leggja allt kapp á að hemja þá og ef það tekst þá verður þetta spennandi.





