HomeÚti í heimiEvrópaTímabilinu lokið hjá Tryggva

Tímabilinu lokið hjá Tryggva

Tímabilinu er lokið hjá landsliðsmiðherjanum Tryggva Snæ Hlinasyni en hann er kominn í sumarfrí eftir að lið hans, Bilbao, féll úr leik í átta liða úrslitum spænsku ACB deildarinnar.

Tryggvi Snær átti mjög gott tímabil persónulega, þar sem hann bar jafnframt fyrirliðabandið hjá spænska liðinu.

Valencia tryggði sér áframhald í úrslitakeppninni með öruggum 88:71 sigri í öðrum leik liðanna sem fram fór á heimavelli Bilbao í dag. Tryggvi Snær lék í 27 mínútur í leiknum og nýtti tímann vel, en hann skilaði glæsilegri tvennu með því að skora tíu stig og rífa niður tíu fráköst.

Fréttir
- Auglýsing -