HomeÚti í heimiEvrópaTímabilið búið eftir svekkjandi tap í umspili

Tímabilið búið eftir svekkjandi tap í umspili

Tímabili Elvars Más Friðrikssonar og félaga í Anwil Wloclawek er lokið eftir naumt tap gegn Dabrowa Górnicza í úrslitaleik um sæti í átta liða úrslitakeppni pólsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Anwil endaði í sjöunda sæti deildarinnar og fékk tvo möguleika í umspilinu til að tryggja sér áframhaldandi þátttöku, en eftir tap gegn Zastal á föstudaginn og svekkjandi niðurstöðu í kvöld er liðið fallið úr leik.

Elvar Már var áberandi í liði Anwil í kvöld og gerði sitt besta til að halda tímabilinu á lífi með því að skora 14 stig og gefa sex stoðsendingar. Hann nýtti fjögur af tíu þriggja stiga skotum sínum og var stigahæsti leikmaður liðsins ásamt því að vera sá sem bjó mest til fyrir samherja sína, en það dugði þó ekki til að forða liðinu frá sumarfríi.

Fréttir
- Auglýsing -