Það skiptast nú á skin og skúrir í Ljónagryfjunni. Í fyrstu var óttast að Snorri Hrafnkelsson hefði slitið krossbönd en svo skánuðu tíðindin en stóri dómur er nú kominn, fremra krossband er slitið og leiktíðin á enda hjá miðherjanum unga sem gekk í raðir Njarðvíkinga í sumar. Þá er Maciej Baginski með einkirningasótt og þarf að hvíla næstu tvo mánuði hið minnsta en það skýrist á næstunni hvort það gætu jafnvel orðið 3 eða 4 mánuðir, þetta staðfesti Einar Árni Jóhannsson í samtali við Karfan.is í dag.
„Við reiknum ekkert með Snorra fyrr en næsta haust og það liggur fyrir að Maciej þarf að hvíla næstu tvo til þrjá mánuði. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir okkur enda eru þetta lykilmenn í liðinu og báðum var þeim ætlað stórt hlutverk þennan veturinn. Ljósið í myrkrinu er þó það að í kvöld verður Ólafur Helgi Jónsson í búning en hann sleit aftara krossband þann 10. apríl síðastliðinn,“ sagði Einar Árni. Njarðvíkingar eru þó með mikla breidd segir Einar.
„Þetta er sárt fyrir þessa ungu menn sem hafa lagt mikið á sig og æft gríðarlega vel í sumar og haust. Við tökum þessu eins og hverju öðru hundsbiti og það kemur þá í hlut annarra leikmanna að stíga upp, eldri og reyndari menn verða að bæta við sig snúning í ljósi þessara frétta.“



