HomeFréttirTilbúinn í Bónus deildina með Hornfirðingum

Tilbúinn í Bónus deildina með Hornfirðingum

Erlendur Björgvinsson, betur þekktur sem Elli Bróa, hefur skrifað undir nýjan samning við Sindra og mun leika með liðinu í Bónusdeild karla á komandi tímabili. Erlendur er uppalinn Hornfirðingur sem hefur leikið nánast alla sína yngri flokka hjá félaginu, að undanskildu einu tímabili með ÍR, og hefur verið lykilmaður í meistaraflokki Sindra síðan hann sneri aftur heim.

Hjá Sindra ríkir mikil ánægja með að halda honum innan raða félagsins. Erlendur hefur samkvæmt tilkynningu sýnt miklar framfarir á undanförnum árum, breyst úr efnilegum leikmanni í öflugan skotmann og er óhræddur við að taka á sig aukna ábyrgð á vellinum. Það þykir sérstaklega ánægjulegt fyrir félagið að sjá uppalinn leikmann fylgja liðinu alla leið upp á stærsta svið íslensks körfubolta.

Fréttir
- Auglýsing -