Tiit Sokk, þjálfari Eistlands, var að vonum nokkuð ánægður með spilamennsku sinna manna í kvöld. Hann sagði liðið hafa fengið að spila sinn leik og var ánægður með sigurinn fyrir baráttuna um sæti í Evrópukeppni landsliða.
Spilaðist leikurinn eins og þú bjóst við?
"Já þetta var það sem ég bjóst við, þetta var mikilvægur leikur fyrir okkur því við eigum möguleika á að komast áfram og þurftum því nauðsynlega á þessum sigri að halda. Við byrjuðum af krafti í vörninni og mér fannst við spila góðan varnarleik sem skilaði okkur því forskoti sem við héldum til loka leiks. Íslenska liðið reyndi sitt besta en í dag fannst mér við eiga sigurinn skilið".
Féngu þið ekki að spila akkurat þann körfubolta sem þið viljið?
"Já þetta er okkar leikur, við settum niður þristana og þetta var góður dagur fyrir okkar lið"
Var eitthvað við Íslenska liðið sem kom þér á óvart í kvöld?
"Nei, við þekktum Íslenska liðið. Þeir eru með góðar skyttur, ekki svo ólíkir okkar liði. Þeir eru ekki með mjög sterka stóra menn, við skoruðum meira en þeir undir körfunni og þetta gekk því eins og við áætluðum".
Mynd: Þorsteinn Eyþórsson – Stuðningsmenn Eistlands létu merkilega vel í sér heyra í leiknum í kvöld og studdu sína menn til sigurs