HomeFréttirÞurrkurinn of langur hjá sextán ára stelpunum

Þurrkurinn of langur hjá sextán ára stelpunum

Stelpurnar í U16 töpuðu fyrir heimastúlkum í Svíþjóð 53-38. Stelpurnar byrjuðu mjög vel og voru vel stilltar. Þær börðust í fráköstunum gegn hávöxnum Svíum. Staðan var orðin 9-16 um miðjan 2. leikhluta og fínn gangur á stelpunum. En þá kom afleitur kafli þar sem ekkert gekk og Svíar gengu á lagið og keyrðu upp muninn og höfðu að lokum alltof stóran sigur. Stigahæst hjá Íslandi var Aníta Carter Kristmundsdóttir með 18 stig og næst henn var Sara Rún Hinriksdóttir með 10 stig.
Svæðisvörnin var að virka vel en Margrét Sturlaugsdóttir tefldi fram lágvöxnu byrjunarliði en þrátt fyrir það gekk ágætlega að stíga út.
 
Í stöðunni 9-16 Íslandi í vil gerðist eitthvað skrýtið en þá fór ekkert að detta hjá Íslandi. Svíarnir komust yfir með þrist og leiddu 17-16. Ísland tók leikhlé en fátt gerðist í sóknarleik Íslands. Þær skoruðu aðeins eina körfu það sem eftir var hálfleiksins gegn 15 stigum frá Svíum og leiddu þær 29-18 í hálfleik.
Þriðji leikhluti var keimlíkur endanum á öðrum. Ekkert gekk í sóknarleik íslensku stelpnanna og áfram komu stigin frá þeim sænsku. Fyrstu 10 stigin voru sænsk en það var ekki fyrr en þrjár mínútur voru eftir af þriðja leikhluta að Ísland skoraði en þá setti Sara Hinriksdóttir flotta körfu. Íslandi lokaði þriðja leikhluta með 11-2 spretti og munurinn því 13 stig fyrir lokaleikhlutann 42-29.
Sara opnaði 4. Leikhluta með körfu og munurinn kominn í 11 stig. Svíarnir svöruðu með þrist en Ísland hélt áfram í svæði sem neyddi Svíana í erfið skot. Áfram gekk Íslandi erfiðlega að skora og var það þeim að falli að lokum. Munurinn fór upp í 20 stig um miðjan lokaleikhlutann og þá var allt gas búið hjá stelpunum sem máttu sætta sig við sitt þriðja tap í jafn mörgum leikjum.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -