Landsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson og félagar í Tenerife lögðu stórlið Real Madrid, 97-98, í hörkuspennandi fyrsta leik í úrslitakeppni spænsku ACB deildarinnar í kvöld. Sigurinn hékk á bláþræði en Elvar Már lagði sitt af mörkum með 4 stigum og 3 stoðsendingum í leiknum.
Tenerife nægir nú sigur á heimavelli í næsta leik til að slá Real Madrid úr leik og tryggja sér sæti í undanúrslitunum, þar sem vinna þarf tvo leiki til að komast áfram.




