HomeBónus deildinBónus deild karlaÞungar sektir eftir nágrannaslag Grindavíkur og Njarðvíkur

Þungar sektir eftir nágrannaslag Grindavíkur og Njarðvíkur

Aga- og úrskurðarnefnd hefur birt niðurstöður sínar eftir mikinn hita í leik Grindavíkur og Njarðvíkur þann 1. apríl síðastliðinn. Þyngsta höggið fellur á Grindavík, sem þarf að greiða 250.000 krónur vegna verulega ámælisverðrar háttsemi áhorfenda sem fóru inn á völlinn og lentu í stimpingum við leikmenn.

Leikmennirnir Jordan Semple hjá Grindavík og Dominykas Milka hjá Njarðvík voru sektaðir um 80.000 og 40.000 krónur fyrir framkomu sína í leiknum. Þá hlutu Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, og leikmaðurinn DeAndre Kane sektir vegna uppsafnaðra tæknivilla á tímabilinu.

Þrátt fyrir alvarleika málsins taldi nefndin það til málsbóta að gæslumenn í Grindavík hefðu brugðist hratt við þegar áhorfendur hljópu inn á gólfið og náð að leysa úr aðstæðum með skjótum hætti.

Fréttir
- Auglýsing -