Ágúst Björgvins með Valsstúlkur í heimsókn og ekki laust við auka spennu þegar fyrrverandi leikmenn og þjálfari mæta sínu gamla liði. Valur vann sannfærandi síðasta leik við KR og Hamar með 2 sigra í röð fyrir leikinn svo vænta mátti hörku leiks!
Byrjunarlið gestanna var skipað þeim Lacey, Melissa,Kristrúnu, Guðbjörgu og Maríu Ben en hjá Hamri byrjuðu Marín, Samantha, Katerine, Íris og Fanney. Hamarskonur voru lengur í gang en gestirnir sem gékk flest í haginn framan af leik.
Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir heimastúlkur og Valur komst í 0-7 og bætti heldur í en þær náðu að opna vörn Hamars vel meðan skotin vildu ekki rata rétta leið hjá heimastúlkum.17-27 eftir 1. leikhluta. 2.leikhluti ….. endurtekin byrjun og allt Valsliðið var að skora og leit virkilega vel út. Eftir um 1 mínútu af 2.leikhluta var Valur komin með 19-34 en þá skoraði Hamar 13 stig í röð og breitti leiknum heldur betur. Eftir það var frekar jafnt á skori og hraður og skemmtilegur leikur. Þegar um 1 minúta lifði af 2.leikhluta fékk Signý tvö víti og setti seinna og kom Val í 36-44 en Samantha hjá Hamri setti 3ja stiga körfu, stal boltanum í næstu sókn og setti annað vítið ofaní í kjölfar brots. Samantha fékk svo boltan aftur á seinustu andartökum fyrri hálfleiks en Þórunn hjá Val braut á henni í skoti þegar 0,5 sek. voru eftir en hún setti einungis 1 af 3 og staðan því 41-44 í hálfleik.
Viljinn var til góðra verka var mikill hjá báðum liðum og baráttan mikil en í byrjun 3.leikhluta var meira að falla með Val sem skoraði 6 fyrstu stigin en Íris svaraði með þristi en Valur kosmst aftur í þægilega stöðu 48-58. Eins of oft áður kom auka kraftur í heimastúlkur sem skoruðu næstu 11 stigin meðan boltin vildi ekki ofaní hjá þeim rauðklæddu og jafnt eftir 3ja leikhluta 63-63. Hér var vörnin aðalsmerki beggja liða og áhorfendur heldur betur búnir að taka við sér og voru að fá fullt fyrir peninginn. Hjá Val var helstu áhyggjurnar að Lacey var komin með 4 villur og hjá Hamri var Katherine á öðrum fætinum eftir að hún snéri sig á ökla í 3. leikhluta en áfram hélt hún samt!
Síðasti leikhluti var jafn og spennandi þar sem nokkuð var um tæknimistök á báða bóga en nú náði Hamar loksins smá forystu. Hamar komst í 74-67 en Valur jafnaði 74-74. Hamar var sterkari á lokakaflanum og var að spila mjög góða vörn, komustu í 85-76 og Gústi tekur leikhlé fyrir Val þegar 2:15 lifir af leiktímanum. Melissa sem lítið var búin að skjóta utan 3ja stiga setti strax einn stóra þrist fyrir gestina og næstu 4 stigin voru einnig Vals 85-81. Krsitrún Sigurjóns brýtur á Katherine sem setur 1 af 2 vítum þegar 11.8 sekundur lifa af leiknum og Ágúst með leikhlé aftur. Melissa skorar með gengumbroti þegar 8,6 sek. eru eftir og miði er möguleiki! Hamar tekur leikhlé og eftir dramagang og uppkast, sem Hamar átti, endar leikurinn 86-83 við mikinn fögnuð heimamanna.
3.sigurinn í röð hjá Hamri á 8 dögum og eru núna ofar Fjölni í töflunni með betri innbyrgðis skor en bæði lið eru með 10 stig meðan Valur er næsta lið fyrir ofan með 14 stig.
1. leikhluti 17-27
2. leikhluti 24-17
3. leikhluti 22-19
4. leikhluti 23-20
Stig heimastúlkna skoruðu Katherine 26 stig/6 fráköst, Samantha 24stig/7stoðsendingar, Fanney Lind 14 stig, Íris 11 stig (3 af 3 þristum), Álhildur 5 stig, Marín 4 og Jenný 2 stig.
Hjá Val skiptust stigin þannig að Kristrún var með 21 stig/4 frák/4 stoðsendingar, Melissa 16 stig, María Ben 16 stig/5 frák., Lacey 14 stig/8 fráköst/6 stoðsendingar og 3 varin skot (þrátt fyrir villuvandræði), Guðbjörg 13 stig og Signý 3 stig.
“Stattið” var miskráð milli leikmnna Vals en verður leiðrétt við fyrsta tækifæri inn á KKI.is. Melissa var nr.12 og María Björns nr.5 sem og að Lacey var skráð sem Margrét Ósk nr.7
Mynd/ Úr safni – Íris Ásgeirsdóttir setti þrjá þrista úr jafn mörgum tilraunum fyrir Hamar í kvöld.
Anton Tómasson



