spot_img
HomeFréttirÞrír nýliðar í æfingahóp kvennalandsliðsins fyrir Portúgalferðina

Þrír nýliðar í æfingahóp kvennalandsliðsins fyrir Portúgalferðina

Landslið kvenna hefur komið saman til æfinga að nýju en framundan er seinni keppnisglugginn á þessu tímabili. Í þessum landsliðsglugga mun liðið leika úti gegn Portúgal þann 20. febrúar og hér heima þann 24. febrúar gegn Ungverjalandi, en leikirnir eru liður í undankeppni EM.

Ívar Ásgrímsson, þjálfari, og Bjarni Magnússon, aðstoðarþjálfari, hafa boðað 20 leikmenn til æfinga. Liðið hefur æft um helgina og í morgun og verða við æfingar næstu tvo daga fram að brottför í fyrri leikinn. Þrír nýliðar hafa verið boðaðir á æfingarnar en þær eru María Björnsdóttir, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir og Sylvía Rún Hálfdanardóttir.

Þær sem koma nýjar inn í æfingahópinn eru eftirfarandi leikmenn:
Hallveig Jónsdóttir – Valur · Bakvörður · f. 1995 · 180 cm · 3 landsleikir
Ingunn Embla Kristínardóttir – Grindavík · Bakvörður · f. 1995 · 169 cm · 3 landsleikir
Margrét Kara Sturludóttir – Stjarnan · Bakvörður · f. 1989 · 175 cm · 13 landsleikir
María Björnsdóttir – Snæfell · Framherji · f. 1990 · 176 cm · Nýliði
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir – Hamar · Miðherji · f. 1991 · 188 cm · Nýliði
Sylvía Rún Hálfdánardóttir – Haukar · Bakvörður f. 1998 · 181 cm · Nýliði

Aðrir leikmenn sem voru einnig í æfingahóp í fyrri glugganum og eru í hóp að nýju:
Auður Íris Ólafsdóttir – Haukar · Bakvörður f. 1992 · 174 cm · 8 landsleikir
Berglind Gunnarsdóttir – Snæfell · Bakvörður f. 1992 · 177 cm · 2 landsleikir
Bergþóra Tómasdóttir – Valur · Bakvörður · f. 1994 · 180 cm · 1 landsleikur
Björg Einarsdóttir – Grindavík · Bakvörður · f. 1992 · 165 cm · 3 landsleikir
Bryndís Guðmundsdóttir – Snæfell · Framherji · f. 1988 · 178 cm · 37 landsleikir
Guðbjörg Sverrisdóttir – Valur · Bakvörður · f. 1992 · 180 cm · 9 landsleikir
Gunnhildur Gunnarsdóttir – Snæfell · Bakvörður · f. 1990 · 176 cm · 21 landsleikir
Helena Sverrisdóttir – Haukar · Bakvörður · f. 1988 · 184 cm · 59 landsleikir
Jóhanna Björk Sveinsdóttir – Haukar · Framherji · f. 1989 · 178 cm · 7 landsleikir
Marín Laufey Davíðsdóttir – Keflavík · Miðherji · f. 1995 · 180 cm · 6 landsleikir
Pálína Gunnlaugsdóttir – Haukar · Bakvörður · f. 1987 · 167 cm · 33 landsleikir 
Ragna Margrét Brynjarsdóttir – Stjarnan · Miðherji · f. 1990 · 188 cm · 31 landsleikir
Sandra Lind Þrastardóttir – Keflavík · Miðherji · f. 1996 · 182 cm · 5 landsleikir
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir – Grindavík · Framherji f. 1988 · 181 cm · 38 landsleikir

Staðan í E-riðli í forkeppni EuroBasket 2017

 
TEAM
P
W/L
F/A
PTS
1.
2
2/0
139/100
4
2.
2
2/0
128/98
4
3.
2
0/2
93/123
2
4.
2
0/2
105/144
2



Mynd úr safni/ Salbjörg Ragna í leik með Hamri en hún er nýliði í landsliðinu og hefur æft síðustu daga með hópnum fyrir leikina 20. og 24. febrúar næstkomandi.

Fréttir
- Auglýsing -