Martin Hermannsson og Alba Berlin máttu þola þriggja stiga ósigur gegn Oldenburg í þýsku úrvalsdeildinni í dag, 86-83.
Martin lék mest allra í Berlínarliðinu í leiknum eða tæpar 30 mínútur. Hafði hægt um sig í stigaskorun með tvö stig, en skilaði einnig þremur fráköstum og átta stoðsendingum.
Berlínarliðið hefur verið á ágætis skriði síðan Martin kom aftur í hóp þeirra á dögunum, en þrátt fyrir tap dagsins sitja þeir í 3.-4. sæti deildarinnar með níu sigra líkt og Trier.




