Vestri og ÍA mættust á Jakanum á Ísafirði í kvöld í 1. deild karla. Bæði lið höfðu verið á ágætis siglingu undanfarið, ÍA unnið tvo af síðust þremur og Vestri var búið að vinna tvo í röð. Það var þó ljóst fyrir leikinn að ÍA myndi eiga við ramman reip að draga því byrjunarliðsmennirnir Jón Orri Kristjánsson, Áskell Jónsson og Ómar Örn Helgason ásamt Ármanni Vilbergssyni voru allir fjarverandi. Heimamenn voru hins vegar, í eitt af fáum skiptum í vetur, með fullskipað lið.
Kjarninn
Akurnesingar héldu í við heimamenn fram í byrjun annars leikhluta. En í stöðunni 26-22 stungu Vestramenn af og áður en gestirnir vissu þá voru þeir komnir ofan í 22 stiga holu, 48-26. Eftirleikurinn reyndist heimamönnum auðveldur, munurinn fór aldrei niður fyrir 15 stig það sem eftir lifði leiks og endaði í 40 stigum, 103-63.
Tölfræðin
ÍA átti fá svör við Yima Chia-Kur og Nebojsa Knezevic hjá Vestra en þeir félagar settu 17 af 24 skotum sínum ofan í og skoruðu samtals 48 stig þrátt fyrir að hvorugur spilaði meira en 20 mínútur í leiknum. Derek Shouse var stigahæstur hjá ÍA með 23 stig en setti þó einungis 9 af 27 skotum sínum ofan í enda yfirleitt með tvo til þrjá varnarmenn á sér.
Næstu skref
Eftir erfiða byrjun þá hefur Vestri unnið 4 af síðustu 6 leikjum sínum og eiga góða möguleika á að bæta fjórða sigrinum í röð en fyrsti leikur þeirra á nýju ári verður á móti botnliði Ármanns. Þeir eiga einnig í harðri baráttu við FSu og Hamar um sæti í úrslitakeppninni í vor en Selfyssingar eru sem stendur í 5. sæti deildarinnar, því síðasta sem gefur sæti í úrslitakeppninni.
Akurnesingar eru sem fyrr í áttunda og næst neðsta sæti og þurfa að taka sig verulega á á seinni helmingi tímabilsins stefni þeir á að komast í úrslitakeppnina líkt og síðustu ár. Fyrsti leikur þeirra á nýju ári er einnig á móti Ármanni og því góðar líkur á að þeir byrji það á sigri.
Umfjöllun / Sturla Stígsson




