Ísland leikur í dag sinn annan leik lokamóti EuroBasket 2025 gegn Póllandi kl. 18:30 að íslenskum tíma.
Eftir leik dagsins eru tveir leikir eftir hjá liðinu. Gegn Slóveníu komandi þriðjudag og svo lýkur riðlakeppninni með leik gegn Frakklandi á fimmtudag.
Riðill Íslands er leikinn í Katowice í Póllandi. Í honum eru sex lið og komast fjögur efstu liðin áfram í sextán liða úrslit sem leikin verða í höfuðborg Lettlands, Riga.
Leikur dagsins verður í beinni útsendingu á RÚV og hægt verður að fylgja fréttum af honum og mótinu hér.
Leikur dagsins
EuroBasket 2025
Pólland Ísland – kl. 18:30
Bein útsending á RÚV



