Vegna óveðurs og lokana á fjallvegum eins og Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði hefur þremur leikjum sem áttu að fara fram í dag föstudaginn 20. mars verið frestað. Leikur Tindastóls og Álftanes í Bónus deild karla hefur verið færður til morguns klukkan 16:30 og viðureign Selfoss og Þórs Akureyrar fer sömuleiðis fram á morgun klukkan 19:30.
Enn er unnið að því að finna nýjan leiktíma fyrir viðureign Vestra og KV í fyrstu deild kvenna þar sem færðin á Dynjandisheiði og Þröskuldum hamlar för. Reikna má með áframhaldandi óvissu í samgöngum þar sem útlit er fyrir að fleiri vegir gætu lokast vegna veðursins á næstunni.





