spot_img
HomeFréttirÞorsteinn Már - Pepplistinn Minn

Þorsteinn Már – Pepplistinn Minn

 

Hvað ætli leikmenn setji á fóninn rétt fyrir leik?

 

Við fengum leikmann Þórs, Þorstein Má Ragnarsson, til þess að ljóstra upp fyrir okkur hvaða lög það væru sem hlustað væri á til þess að koma sér í gírinn.

 

Lið Þórs fær KR í heimsókn í kvöld kl. 19:15.

 

 

Þorsteinn:

"Ég valdi mér nokkur lög sem hafa hjálpað mér í gegnum að peppa mig fyrir leik frá unga aldri. Ég svosem hlusta lítið á tónlist fyrir leiki en það eru nokkur lög sem koma mér í gírinn. Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur ég er ekki með nein dauðarokk lög sem enginn þekkir einsog blessaði Baldur bróðir minn"

 

 

Awolnation – Sail

Þetta lag hefur alltaf komið mér í gírinn og kemur manni í góðan ham.

 

Jay Z – Young Forever

Það er ekki hægt að búa til pepplista og hafa ekki kónginn Jay Z á honum. Get líka sagt ykkur það að það er til cover með mér og Emil Karel að syngja þetta lag og heyrst hefur að það sé næstum því jafn vel gert og hjá honum.

 

Fort minor – Remeber the name

Ef eitthver spilaði NBA Live 2008 þá ætti hann að kannast við þetta lag. Algjört körfuboltalag.

 

Muse – New Born

Eitt gamalt og gott með Muse er nauðsynlegt fyrir leik.

 

Rammstein – Du Hast

Til að róa bræður mína niður þá hendi ég í eitt rokklag handa þeim og þá verður maður nú að henda í Rammstein..

 

Justin Bieber – Sorry

Það er ekki annað hægt en að enda þetta á vini mínum Justin Bieber. Verð að viðurkenna hefði alveg getað hent allri nýju plötunni hans hérna inn.

 

 

Áður höfðum við fengið lista frá:

Magnúsi Þór Gunnarssyni

Oddi Péturssyni

Baldri Þór Ragnarssyni

Ómari Erni Sævarssyni

Brynjari Þór Björnssyni

Ágústi Orrasyni

Bryndísi Hreinsdóttur

Bergþóru Holton

Ingva Rafn Ingvarssyni

Stefáni Karel Torfasyni

Eysteini Bjarna Ævarssyni

Sveinbirni Claessen

Emil Barja

Hlyni Hreinssyni

Ægi Þór Steinarssyni

Ragnari Nathanaelssyni

Kjartani Atla Kjartanssyni

Vali Orra Valssyni

Lovísu Björt Henningsdóttur

Fréttir
- Auglýsing -