Þór úr Þorlákshöfn vann Valsmótið 2012 en því lauk í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda í dag þar sem síðasti leikur mótsins var viðureign Þórs og Skallagríms þar sem Þór fór með 82-76 sigur af hólmi.
Hér að neðan fer umsögn um leiki dagsins á Valsmótinu. Þá má hér nálgast myndasafn eftir Tomasz Kolodziejski frá viðureign Augnabliks og Skallagríms í dag.
Fyrsti leikur dagsins var Valur gegn Þór Þorlákshöfn
1.lh 13-31
2.lh 39-54
3.lh 53-77
4.lh 60-97
Skemmst frá því að segja að Þórsarar mættu mun sterkari til leiks að þessu sinni og Valsmenn virkuðu flatir og þreyttir. Þór gekk á lagið og var með örugga forystu eftir 1.lh 31-13. Valsmenn náðu að minnka muninn aðeins í öðrum leikhluta en síðan ekki söguna meir og Þór vann auðveldan sigur á Valsmönnum 97-60
Stigahæstu menn í leiknum voru fyrir Þór
Robert Diggs 23 stig
Darri og Grétar 21 stig hvor
Hjá Val voru stigahæstir
Benedikt Blöndal og Þorgrímur Guðni með 13 stig hvor
Ragnar var með 10 stig og aðrir minna
Leikur 2 var síðan leikur Augnabliks – Skallagríms
1.lh 20-24
2.lh 36-48
3.lh 66-59
4.lh 76-86
Augnablik byrjaði leikinn heldur betur 8-2 á upphafsmínútun en Skallarnir bitu frá sér og höfðu 4 stiga forystu eftir 1.leikhluta. Skallarnir héldu síðan áfram og náðu fínni forystu sem Augnablik var alltaf að reyna að saxa niður. Náðu muninum mest niður í 3 stig en svo náðu Skallarnir að sigla þessu í örugga 10 stiga höfn.
Stigahæstu menn í liði Skallanna voru:
Sigurður og Davíð Ásgeirs með 13 stig hvor
Orri Jónsson var með 12 stig
Davíð Guðmunds var með 11 stig.
Stigahæstir í liði Augnabliks voru:
Leifur Steinn með 22 stig
Þórólfur 21 stig
Jónas Ólason með 10 stig
Þriðji leikur dagins var síðan leikur Vals og Fjölnis.
1.lh 15-14
2.lh 31-37
3.lh 57-59
4.lh 77-72
Fjölnismenn voru mættir aftur með flesta sína menn en Valsmenn hófu þennan leik af miklum krafti og komust í 11-1 eftir 5 mínútna leik, Fjölnismenn náðu þó áttum og minnkuðu muninn niður í 1 stig í lok leikhlutans 14-15. Gestirnir úr Grafarvoginum reyndust svo mun sterkari í 2.leikhluta og náðu að komast mest 10 stigum yfir í honum en staðan í hálfleik 31-37. Seinni hálfleikur var síðan í járnum og skiptust liðin á að hafa forystuna í hröðum leik. Í fjórða og síðasta leikhlutanum tóku Valsmenn hinsvegar öll völd á vellinum og sigruðu hann 20-12 og sigldu fínum sigri í hús 77-72. Fjölnismenn fengu fín tækifæri til þess að jafna eða komast yfir i stöðunni 74-72 fyrir Val en að lokum voru það Valsmenn sem skoruðu þriggja stiga körfu beint eftir leikhlé 77-72 og innan við 20 sekúndur eftir.
Stigahæstir í Valsliðinu voru
Ragnar 23 stig
Birgir 17 stig
Kristinn 11 stig.
Stigahæstir í Fjölnisliðinu voru:
Elvar með 20 stig
Arnþór og Morgan 16 stig hvor
Jón 8 stig.
Síðasti leikur dagsins var síðan viðureign Þórs Þorláskhafnar og Skallagríms, úr varð hörkuleikur þar sem Skallarnir höfðu forystu á köflum en Þórsarar reyndur þó sterkari á lokasprettinum og höfðu sigur 82-72.
Þór Þorlákshöfn – Skallagrímur
82-76 fyrir Þór.
Stigahæstu menn í þór
Róbert Diggs 26 stig
Emil Karel 16
Grétar Ingi 15 stig
Stigahæstu menn Skallagr
Paxel 17 stig
Sigurðu 12 stig
Sigmar 11 stig
82-76 fyrir Þór.
Stigahæstu menn í þór
Róbert Diggs 26 stig
Emil Karel 16
Grétar Ingi 15 stig
Stigahæstu menn Skallagr
Paxel 17 stig
Sigurðu 12 stig
Sigmar 11 stig
Að þessu sinni er því vel heppnuðu Valsmóti lokið með Þórssigri. Þeir sigruðu alla 4 leiki sína nokkuð örugglega. Valsmenn enda síðan í 2 sæti eftir 3 sigra og 1 tap. Skallagrímur, Fjölnir og Augnbalik eru síðan öll jöfn 2 stig eða 1 sigur og 3 töp.
Lokastaðan :
Þór Þorlákshöfn 8 stig
Valur 6 stig
Fjölnir 2 stig
Augnablik 2 stig
Skallagrímur 2 stig
Við náðum í skottið á Sævaldi Bjarnasyni annars tveggja þjálfara Valsmanna í lok móts og rifum upp úr honum nokkrar línur.
Hvernig fannst þér til takast með mótið í ár?
Við erum fyrst og fremst bara sáttir að mótið sé haldið aftur og það tókst að okkar mati með ágætum. Allar tímasetningar stóðust og viljum við þakka þeim sem komu að mótinu í ár kærlega fyrir aðstoðina. Bæði sjálfboðaliðum og þeim liðum sem komu. Vonandi er þetta komið til að vera áfram með þessu fyrirkomulagi og við getum bara bætt okkur fyrir næsta ár, fengið t.d fleirri lið inn í mótið og haldið kvennamót samhliða á næsta ári. Það er a.m.k. markmiðið að Valsmót verði eftirsótt æfingamót sem lið vilji koma í eins og það var hér á árum áður.
Hvað okkur Valsmenn varðar þá erum við bara nokkuð glaðir í bragði. Okkar væntingar til þessa móts voru að ná nokkrum æfingaleikjum við góð lið og reyna að bæta okkur leik frá leik. Ég held að það hafi tekist bærilega hjá okkur, við vorum að spila við þrjú úrvalsdeildarlið og eitt fyrstu deildar lið um helgina þannig þetta var bara ágætt og vonandi náðu önnur lið að gera slíkt hið sama, ef svo er hljóta allir að vera kátir.






