Þórsarar báru sigurorð af FSU 89-79 þegar liðin mættust í kvöld í höllinni á Akureyri. Þórsarar voru ávallt skrefinu á undan en þegar þeir virtust ætla að ná þægilegu forskoti komu gestirnir ávallt til baka með góðri hittni utan af velli. Þórsarar voru þó að lokum sterkari og lönduðu góðum 89-79.
Heimamenn byrjuðu leikinn mjög vel, náðu fljótt átta stiga forskoti 13:5. Þegar tvær og hálf mínúta voru eftir fyrsta fjórðung leiddu strákarnir leikinn með tíu stigum, 19-9 en þá kom góður 7-3 sprettur gestanna. Heimamenn leiddu þó engu að síður leikinn með sex stigum, 22-16 eftir fyrsta fjórðung. Jafnt var með liðunum í byrjun annars fjórðungs en þegar líða tók á fjórðungin náðu Þórsarar 12 stiga forskoti, þökk sé góðri vörn þá sérstaklega hjá þeim Sindra Davíðssyni og Vic Ian sem héldu Vali Valssyni algjörlega niðri. Gestirnir áttu í töluverðu basli með vörn heimamanna og því leiddu heimamenn með 12 stigum þegar liðin gengu til búningsklefa, 46-34.
Gestirnir byrjuðu síðari hálfleikinn nokkuð vel og náðu að minnka forskot heimamanna niður í átta stig. Heimamenn jöfnuðu þó fljótt á hamagangi gestanna og náðu aftur tólf stiga forskoti, 55-43. Þórsarar héldu lengst af um 12 stiga forskoti en gestirnir náðu góðum spretti undir lokin og minnkuðu muninn niður í sjö stig, 64-57. Í lok fjórðungsins fékk hin efnilegi Valur Orri Valsson tæknivillu fyrir að kvarta við dómara leiksins. Þórsarar hófu því síðasta fjórðunginn á vítalínunni og setti Konrad Tota bæði skotin niður. Þórsarar virtust vera komnir með leikinn í sínar hendur og leiddu leikinn nokkuð örugglega en um miðbik fjórðungsins náðu gestirnir fínum spretti og minnkuðu forystu heimamanna niður í sex stig, 71-65. Þórsarar náðu þó fljótt aftur 10 stiga forskoti og leiddu leikinn 79-69 þegar 2 mínútur og 21 sekúnda voru til leiksloka. Gestirnir neituðu að gefast upp og náðu með mikilli hörku að minnka forskotið niður í 5 stig, 83-78 þegar hálf mínúta var til leiksloka. Gestirnir reyndu hvað sem þeir gátu til að minnka forskotið enn frekar en heimamenn voru sterkir á vítalínunni og náðu að tryggja sér að lokum 89-79 sigur.
Atkvæðamestir heimamanna: Konrad Tota 27 stig, Óðinn Ásgeirsson 20 (13 fráköst og 5 stoðsendingar), Ólafur Torfason 11 stig, Wesley Hsu 11, Benedikt Pálsson 9, Sindri Davíðsson 7, Vic Ian Damasín 2, Björn Benediktsson 2
Atkvæðamestir gestanna: Valur Orri Valsson 22 stig, Guðmundur Auðunn Gunnarsson 20, Björn Kristjánsson 11, Sigurbjörn Jónsson 8, Arnþór Tryggvason 7, Orri Jónsson 5, Sæmundur Valdimarsson 4, Björgvin Jóhannesson 2
Umfjöllun: Sölmundur Karl Pálsson




